Bygg
Bygg

Fréttir

Dansandi norðurljós
Þriðjudagur 15. október 2013 kl. 10:09

Dansandi norðurljós

Það var mikið norðurljósafjör á himnum í gærkvöldi. Ljósin dönsuðu óvenju mikið í um tvær klukkustundir á milli kl. 21 og 23 í gærkvöldi en þá var orðið nokkuð skýjað og ljósagangurinn varð ekki eins mikill.

Norðurljós eru vinsælt myndefni en flestir reyna að komast úr ljósmengun bæjanna til að mynda ljósadýrðina. Ljósin voru hins vegar það mikil í gær að margir létu ekki ljósmengun frá götulýsingu trufla sig.

Meðfylgjandi mynd tók Hilmar Bragi á Ásbrú um kl. 23 í gærkvöldi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn