Dálítil slydda eða rigning
Austan 10-18 m/s og dálítil slydda eða rigning við Faxaflóa. Hiti 0 til 5 stig. Heldur hægari og bjart veður á morgun.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Austan 10-15 m/s og dálítil slydda eða rigning. Hiti 1 til 4 stig. Hægari og bjart veður á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Austan 8-13 m/s, en 15-20 syðst. Él SA-lands, annars þurrt og víða bjart veður. Hiti 0 til 5 stig að deginum, en 0 til 5 stiga frost fyrir norðan og austan.
Á sunnudag og mánudag:
Hæg breytileg átt og víða léttskýjað, en dálítil él við NA-ströndina. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum, en frostlaust við S- og V-ströndina að deginum.
Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:
Norðaustlæg átt, stöku él og kalt í veðri.