Bygg
Bygg

Fréttir

Dálítil rigning eða súld
Þriðjudagur 12. október 2010 kl. 08:28

Dálítil rigning eða súld

Gert er ráð fyrir suðaustan 5-10 m/s við ströndina, en annars hægari, segir í spá Veðurstofu Íslands fyrir Faxaflóasvæðið næsta sólarhringinn. Suðvestan 5-10 á morgun. Dálítil rigning eða súld og hiti 7 til 13 stig.?

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðlæg átt, 3-8 m/s og lítilsháttar væta. Hiti 8 til 11 stig.?

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:?Suðlæg átt, víða 3-8 m/s, en 8-13 við V-ströndina. Dálítil væta öðru hverju V-til á landinu, en annars þurrt að kalla. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast fyrir norðan. ??Á fimmtudag:?Suðvestanátt með skúrum, einkum SV-lands. Hiti 5 til 10 stig. ??Á föstudag og laugardag:?Suðlæg átt og vætusamt, en úrkomulítið NA-lands. Milt veður. ??Á sunnudag og mánudag:?Útlit fyrir norðlæga átt og heldur kólnandi veður.?