Bygg
Bygg

Fréttir

Dálítil rigning
Mánudagur 3. október 2011 kl. 09:08

Dálítil rigning

Suðvestan 8-13 m/s og skúrir eða dálítil rigning við Faxaflóa, en vestlægari seinni partinn. Norðan 5-10 og úrkomulítið á morgun. Hiti 6 til 11 stig.?

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðvestan 8-10 m/s, en snýst í norðan 5-10 í kvöld. Dálítil væta og hiti 6 til 10 stig.?

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Norðan 8-13 m/s og rigning eða slydda á N-verðu landinu, en hægari úrkomulítið syðra. Hiti 1 til 10 stig, mildast syðst.

Á miðvikudag: Norðaustan 8-13 m/s og víða rigning, en sums staðar slydda fyrir norðan. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast S-lands.

Á fimmtudag: Ákveðin norðanátt með rigningu og síðar slyddu eða snjókomu, en úrkomulítið S- og V-lands. Kólnandi veður.

Á föstudag: Yfirleitt hægir vindar og léttskýjað, en norðanátt með éljum við A-ströndina. Hiti víða 0 til 5 stig að, en sums staðar vægt frost N- og A-lands.

 Á laugardag og sunnudag: Útlit fyrir suðvestanátt með rigningu S- og V-lands og heldur hlýnandi veðri.