Þriðjudagur 24. janúar 2006 kl. 09:04
Dálítið hvasst og súld öðru hverju

Klukkan 6 var suðlæg átt, víða 3-8 m/s og léttskýjað, en 8-13 og skýjað suðvestanlands. Hlýjast var 5 stiga hiti á Reykjanesi, en kaldast 10 stiga frost á Brú í Jökuldal.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Suðaustan 10-18 m/s og súld öðru hverju, hvassast á annesjum. Hiti 2 til 7 stig.