Dagskrá Sandgerðisdaga flutt inn úr rigningunni
 Sandgerðisdagar eru haldnir hátíðlegir í dag.. Reynir Sveinsson, einn af aðstandendum hátíðarinnar sagði í samtali við Víkurfréttir að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Dagskráin sé haldin innandyra í Tikk-húsinu, þar sem utandyra er úrhelli. Hann sagði að nóg væri að bíta og brenna handa öllum á staðnum.
Sandgerðisdagar eru haldnir hátíðlegir í dag.. Reynir Sveinsson, einn af aðstandendum hátíðarinnar sagði í samtali við Víkurfréttir að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Dagskráin sé haldin innandyra í Tikk-húsinu, þar sem utandyra er úrhelli. Hann sagði að nóg væri að bíta og brenna handa öllum á staðnum.
Sannkölluð tívolístemmning verður við Tikk-húsið í dag, laugardag, þar sem verður m.a. markaður þar sem maður getur keypt allt á milli himins og jarðar. Margt verður um góða gesti eins og áður sagði og þar fer fremst  í flokki poppdrottningin sjálf, Birgitta Haukdal, sem mun taka  nokkur lög ásamt Vigni félaga sínum úr Írafári. Klukkan 14 eru allir hátíðargestir hvattir til að mæta á Sand-gerðisvöll og styðja við bakið á Reynismönnum sem etja kappi við lið Fjarðarbyggðar í úrslitum 3. deildar karla í knattspyrnu.
Hátíðinni verður svo slitið opinberlega á laugardagskvöld með flugeldasýningu, brennu og bryggjusöng.
Reynir lofar miklu fjöri. „Þetta verður stanslaus skemmtun og allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.”
Laugadagur 28. ágúst
Kl. 11 Gókart  fyrir unlinga og fullorðna 
Kl. 11: Míni Gókart fyrir 4 til 8 ára við Fiskmarkaðinn  
Kl. 11:30  MammaMía: Enski boltinn 
Kl. 13 Fræðasetur:  Listaverkasýning Reynis Katarínar; Gyðjur og  Goð úr Norræni goðafræði, vatns- og olíumyndir ásamt steinum.  
Kl. 13 Þyrluflug: Útsýnisflug yfir Sandgerði og nágrenni   
Kl. 13 Listasmiðjan NýVídd Strandgötu opin gestum 
Kl. 13 Jöklaljós Strandgötu  opið gestum  
Kl. 13 – 19  Sigurvon  Strandgötu: Bílar og tæki til sýnis 
Kl. 13 - 19 Slökkvistöð, Strandgötu:  Bílar til sýnis 
Kl. 13 – 17  Púlsinn ævintýrahús Víkurbraut: Leikskemmtun á palli Púlsins                  
Magadansmær
Götuleikhús út um allan bæ frá kl 14:30 
Opið hús í Púlsinum til kl. 17:00 
Kl. 13 - 17 Lionshúsið: Saga hússins og  gömul blöð Lions, Efra Sandgerði  
Hafnarvideó alls konar tilboð í gangi 
Shell-skálinn  Strandgötu: Tilboð í gangi  
Kl. 13 Tikk húsið: Markaður, leirlist, kerti, hákarl, harðfiskur, minjagripir
Tikk húsið: Svið – alls konar uppákomur 
Tikk  húsið: Kaffisala Kvenfélagsins Hvatar
Kl. 13 Alls konar leiktæki fyrir börnin 
Kl. 13 Kajakar við bátabrautina 
Kl. 14:30 Ernir; Bifhjólasamtök Suðurnesja sýna glæsifáka 
Kl. 13 Spákona  í Tikk húsi   
Kl. 13 - 16 Bílbeltastóll  VÍS: Árekstur á 15 km hraða 
Kl. 13 Þrautarganga. Hvert fór kvótinn okkar? 
Kl. 14 Úrslitaleikur á Reynisvelli: Reynir og Fjarðarbyggð
Kl. 13 Suðurnesjatröllið: Sterkustu menn landsins keppa  
Kl. 16 Ökuleikni á vörubílum við Fiskmarkaðinn í umsjá Auðuns Pálssonar     skráning í síma  824-1060 
Kl.16:30 Lyftararallí í umsjá Auðuns Pálssonar
Kl. 17  Dorgveiðikeppni fyrir börn í umsjá Björgunarsveitarinnar Sigurvonar 
Kl. 15  Ómar Ragnarsson skemmtir ungum sem öldnum 
Kl. 15 Birgitta Haukdal syngur vinsæl lög við undirleik Vignis  Vigfússonar gítarleikara úr Írafári   
Kl. 16 Kassabílarallí 
Kl. 16 Harmonikkuleikur í Tikk húsi og lifandi tónlist, tónlistaruppistand o. fl.
Kl. 22 Varðeldur  og bryggjusöngur  
Kl. 20 - 24 Braggabandið leikur fyrir dansi í Tikk-húsinu fyrir alla aldurshópa  
Kl. 23 Flugeldasýning  í umsjá Björgunarsveitarinnar  Sigurvonar 
Kl. 23 Vitinn: Dansleikur, hljómsveit Rúnars Þórs leikur   
Kl. 23 MammaMía: Dansleikur, Halli Valli og Smári  leika  


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				