Dagdvöl aldraðra tíu ára
Dagdvöl aldraðra við Suðurgötu í Keflavík fagnaði 10 ára afmæli í gær, mánudaginn 23. september. Í tilefni dagsins voru rjómatertur og smurbrauð á borðum og gestum boðið upp á kaffi, kakó og gosdrykki. Í dag sækja nítján einstaklingar dagdvölina hvern virkan dag en þegar starfsemin byrjaði fyrir tíu árum voru einstaklnigarnir tíu. Í tilefni afmælisins var þeim Rósu Teitsdóttur og Aðalbergi Þórarinsssyni færð blóm en þau hafa tekið virkan þátt í starfi dagdvalarinnar frá opnun hennar fyrir áratug.OPIÐ HÚS LAUGARDAGINN 28. SEPTEMBER 2002
KL. 10 – 16 Í DAGDVÖL ALDRAÐRA SUÐURGÖTU 12-14, REYKJANESBÆ.
Dagdvöl aldraðra verður 10 ára í lok september. Dagdvölin er starfandi að Suðurgötu 12 –14 og hefur verið starfrækt þar frá upphafi, fyrst um sinn í hluta af neðstu hæð hússins í samvinnu við félagsstarf aldraðra en síðustu árin á allri hæðinni.
Dagdvöl er stuðningsúrræði fyrir eldri borgara sem búa í heimahúsum þar sem boðið er upp á keyrslu til og frá heimili, böðun, fullt fæði, ýmsa tómstundaiðju, félagsþjónustu o.fl.
Dagdvölin er starfrækt á vegum Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar með daggjöldum frá Heilbrigðis- og tyggingamálaráðuneytinu. Í byrjun voru leyfi frá ráðuneytinu fyrir 10 dvalargesti en í dag eru leyfin 19 og hafa þau verið fullnýtt frá upphafi.
Lögð er áhersla á persónulega þjónustu og reynt er að sinna hverjum einstaklingi á hans eigin forsendum eftir fremsta megni. Þessi gerð af þjónustuúrræði er það form sem hefur verið að ryðja sér til rúms á síðustu árum. Dagdvöl fyrir aldraða hefur þann kost í för með sér að einstaklingurinn getur búið lengur heima og dregur úr stofnanavist.
Mikil ánægja hefur verið hjá dvalargestum og starfsfólki með þetta þjónustuform þar sem markmiðið er að veita hinum aldraða umhyggju og stuðla að sjálfstæði hans.
Bæjarbúar verið hjartanlega velkomnir í Dagdvölina laugardaginn 28. september n.k. Það verður kaffi á könnunni.
Myndin: Inga Lóa Guðmundsdóttir, forstöðumaður Dagdvalar aldraðra ásamt þeim Rósu Teitsdóttur og Aðalbergi Þórarinssyni með blómin í gær. VF-mynd: Hilmar Bragi