Bygg
Bygg

Fréttir

Dæmdur fyrir kannabisræktun og brot á vopnalögum
Mánudagur 12. september 2011 kl. 10:58

Dæmdur fyrir kannabisræktun og brot á vopnalögum


Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt þrítugan karlmann úr Reykjavík í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kannabisræktun og brot á vopnalögum. Ræktunin átti sér stað í húsnæði í Reykjanesbæ.

Rúm 1,2 kíló af kannabislaufum og 355 grömm af maríjúana fundust við húsleit í íbúð mannsins í Reykjanesbæ þann 8. desember í fyrra. Þá fannst skammbyssa af gerðinni Parabellum í skúffu í kommóðu sem var í svefnherbergi íbúðarinnar við húsleit. Maðurinn var ekki með leyfi fyrir byssunni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn