Bygg
Bygg

Fréttir

Miðvikudagur 25. september 2002 kl. 08:38

Dæmdur fyrir skila ekki virðisaukaskatti

Fyrrverandi framkvæmdastjóri var í Héraðsdómi Reykjaness í gær, dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða rúmar þrjár miljónir í sekt, fyrir að standa ekki skil á tveimur miljónum króna í virðisaukaskatt. Hann var einnig sakfelldur fyrir brot á bókhaldslögum. Brotin framdi maðurinn á árunum 1993-96.
Maðurinn játaði hreinskilninslega og í ljósi óhæfilegs dráttar, sem varð á rannsókn málsins, var fangelsisrefsing hans skilorðsbundin.
Bílakjarninn
Bílakjarninn