HSS
HSS

Fréttir

Dæmdur barnaníðingur á ferli í Reykjanesbæ
Þriðjudagur 12. febrúar 2008 kl. 23:24

Dæmdur barnaníðingur á ferli í Reykjanesbæ

Ágúst Magnússon, dæmdur barnaníðingur, hefur verið á ferli í Reykjanesbæ í dag. Ágúst ekur um á Toyota Corolla bifreið með skráningarnúmeri sem hefst á bókstöfunum DN. Síðast varð vart við Ágúst þegar hann ók í burtu af bílastæði við Hafnargötu en skömmu áður hafði hann sést á gangi í nágrenni Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Ferðir hans vekja ekki síst athygli því börn í Myllubakkaskóla í Keflavík voru, samkvæmt heimildum Víkurfrétta, í morgun vöruð við ferðum barnaníðings og beðin um að vera ekki ein á ferð og gefa sig ekki á tal við ókunnuga. Sá barnaníðingur var ekki nafngreindur.

Víkurfréttir telja það samfélagslega skyldu sína að upplýsa íbúa Suðurnesja um málið.


Vísir.is hefur fjallað um Ágúst Magnússon, dæmdan barnaníðing, en hann losnaði af Litla-Hrauni á föstudaginn. Yfirvöld hafa ekki viljað gefa upp dvalarstað Ágústs.

Ágúst fékk svokallað reynslulausn en þarf að uppfylla ákveðin skilyrði. Samkvæmt heimildum Vísis eru það félagsþjónustan í Reykjavík í samráði við fangelsismálastofnun sem eiga að útvega Ágústi húsnæði en hvorug þessara stofnana mega tjá sig um mál Ágústar.

Árið 2004 var Ágúst dæmdur fyrir að níðast á sex drengjum og hóf í kjölfarið afplánun á Litla Hrauni. Hann fékk reynslulausn í janúar á síðasta ári á áfangaheimilinu Vernd. Meðan hann var þar gekk hann í gildru fréttaskýringarþáttarins Kompás. Í gegnum internetið hugðist hann hitta þrettán ára stelpu í íbúð í Vesturbæ. Þar biðu hans hinsvegar forsvarsmenn Kompás.

Í kjölfarið tók Vernd þá ákvörðun að vista ekki kynferðisafbrotamenn. Ágúst fær því ekki þar inn nú en samkvæmt upplýsingum Vísis er það nú á könnu Fangelsismálastofnunar og Félagasþjónustunnar í Reykjavík að aðstoða hann um húsnæði.

Ágúst þarf að sæta vissum skilyrðum á reynslu sinni en eins og Vísir hefur áður greint frá þarf hann að tilkynna sig reglulega og má ekki fara á staði þar sem börn stunda tómstundir.

Í ljósi þess að Ágúst er laus af Litla Hrauni hafa þónokkrir haft samband við Vísi og vilja vita hvar hann sé niðurkominn.

Við eftirgrennslan í því máli hefur lítið áorkast. Hvorki fangelsismálastofnun né félagsþjónustan í Reykjavík vilja gefa nokkuð upp í tengslum við Ágúst Magnússon, þar sem þeim er óheimilt að tjá sig nokkuð um mál ákveðinna einstaklinga.

Samkvæmt upplýsingum frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar, sem fer með mál félagsþjónustunnar, eru ekki neinar sérstakar íbúðir til fyrir fanga. Hinsvegar er reynt að koma til móts við einstaklinga sem þessa með t.d húsaleigubótum fyrir íbúðir á almennum leigumarkaði.

 

Uppfært: Brynjar Níelsson, lögmaður Ágústs Magnússonar, hafði samband við Víkurfréttir og óskaði eftir því að bílnúmer á meðflylgjandi ljósmynd yrði afmáð, þar sem Ágúst sé ekki skráður eigandi bifreiðarinnar. Orðið var við þeirri beiðni.

 

Myndir: Efri myndin er af Ágústi Magnússyni. Neðri myndin er af bílnum sem Ágúst var á í Reykjanesbæ í kvöld. Myndin er tekin við Hafnargötu í kvöld.

Bílakjarninn
Bílakjarninn