Bygg
Bygg

Fréttir

Þriðjudagur 6. apríl 2004 kl. 12:12

Daðey GK fékk í skrúfuna

Línubáturinn Daðey GK fékk í skrúfuna um 25 sjómílur vestur af Sandgerði í morgun. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Sandgerði, Hannes Þ. Hafstein var kallað út og var reiknað með að björgunarskipið yrði komið á staðinn um hálf eitt. Reynt verður að skera úr skrúfu bátsins á hafi úti, en báturinn verður dreginn til hafnar ef það gengur ekki. Gott veður er á þessum slóðum og engin hætta talin á ferðum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn