D- og H-listi í Suðurnesjabæ sameinast
D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra og H-listi, Listi fólksins í Suðurnesjabæ, hafa sameinast og munu bjóða fram í komandi bæjarstjórnarkosningum undir merkjum D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra. Er þetta niðurstaða eftir viðræður Sjálfstæðisfélags Suðurnesjabæjar og fulltrúa Lista fólksins.
„Það er trú okkar að með sameiningu listanna séum við sterkari heild til að vinna að umbótum fyrir íbúa Suðurnesjabæjar. Uppröðun verður á listann og mun verða auglýst eftir áhugasömum einstaklingum á listann,“ segir í tilkynningu sem Einar Tryggvason formaður Sjálfstæðisfélags Suðurnesjabæjar, Gísli Rúnar Heiðarsson formaður fulltrúaráðs og Magnús Sigfús Magnússon H-lista skrifa undir.