Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

CRI í Grindavík selur endurnýjanlegt eldsneyti
Þriðjudagur 30. júlí 2013 kl. 16:22

CRI í Grindavík selur endurnýjanlegt eldsneyti

Stærsta fjárfestingin hérlendis frá hruni

Kanadíska fyrirtækið Methanex tilkynnti í dag um fjárfestingu í íslenska eldsneytisfyrirtækinu Carbon Reycling International (CRI) sen rekur fyrstu verksmiðju sinnar tegundar sem framleiðir endurnýjanlegt metanól úr útblæstri, vatni og raforku. Verksmiðja CRI er staðsett í Svartsengi við Grindavík. Methanex leggur til nýtt hlutafé að verðmæti 5 milljónir bandaríkjadala (600 milljónir íslenskra króna) og áformar jafnframt aukna fjárfestingu til að styðja áframhaldandi vöxt CRI. Methanex verður einn af stærstu hluthöfum CRI og tekur sæti í stjórn fyrirtækisins. Carbon Recycling International (CRI) er íslenskt einkahlutafélag og eru höfuðstöðvar þess í Reykjavík. CRI endurvinnur koltvísýring úr útblæstri iðnfyrirtækja með því að nýta endurnýjanlega orku til þess að framleiða fljótandi bílaeldsneyti sem getur dregið markvisst úr losun gróðurhúsalofftegunda frá samgöngum. Eldsneytið, endurnýjanlegt metanól, er selt undir heitinu Vulcanol, sem er skráð vörumerki. 

CRI framleiðir og selur endurnýjanlegt metanól á Íslandi og víðar í Evrópu, undir vörumerkinu  Vulcanol.  Vulcanoli er blandað í bensín eða notað við framleiðslu á öðru eldsneyti, þar á meðal lífdísil. Verksmiðja CRI hefur verið vottuð af stofnuninni International Sustainability and Carbon Certifcation system (ISCC) og telst Vulcanol endurnýjanlegt og sjálfbært eldsneyti sem skilar lágmarks sótspori við framleiðslu og notkun, án áhrifa á lífríki og umhverfi. Methanex og CRI hyggja á nánara samstarf um að reisa stærri eldsneytisverksmiðjur hér á landi með tækni CRI, sem nýta munu innlenda raforku og endurvinna koltvísýring.  Samstarfið mun nýta sérhæfingu Methanex á sviði framleiðslu, dreifingu og sölu metanóls um allan heim og einstaka þekkingu CRI á sviði sjálfbærrar framleiðslu og markaðssetningar endurnýjanlegs eldsneytis. Fyrirtækin telja mikið sóknarfæri á markaði fyrir eldsneyti blandað metanóli í Evrópu. 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Við erum mjög stolt af því að fjárfesta í CRI, sem er leiðandi á sviði framleiðslu endurnýjanlegs metanóls og að geta gert fyrirtækinu kleyft að vaxa enn hraðar,” sagði John Floren, forstjóri Methanex. „Örasti vöxtur í spurn eftir metanóli á heimsmarkaði er til eldsneytisnota. Við teljum að endurnýjanlegt metanól muni knýja frekari vöxt á þeim markaði. CRI teymið hefur þegar þróað nýja tækni, starfrækir verksmiðju og markaðssetur metanól með góðum árangri. Þessi árangur undirstrikar verðmæti þessarar fjárfestingar.“

„Það er okkur mikil ánægja að fá Methanex í hóp hluthafa, með sæti í stjórn CRI. Methanex er leiðandi afl í þessum iðnaði, hvort heldur horft er til framleiðslu, sölu eða markaðsstarfs. Nú hyggjum við á aukna markaðssókn fyrir metanól sem eldsneyti og því er mikill styrkur af samstarfinu við Methanex,“ sagði K-C Tran, forstjóri CRI.

„Við höfum einstaka reynslu af því að byggja og reka fyrstu verksmiðju sem nýtir útblástur gróðurhúsalofttegunda til framleiðslu á fljótandi eldsneyti. Þar sem spurn á heimsmarkaði fer vaxandi eftir eldsneyti sem leiðir til umtalsverðs samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda, er CRI í ákjósanlegri stöðu til að leggja grunn að aukinni framleiðslugetu á Íslandi. Með þessari fjárfestingu hefur Methanex sýnt fram á verðmæti þeirrar þekkingar sem við höfum aflað og gerir þessi stuðningur okkur kleyft að hraða vexti fyrirtækisins.”