Covid-bólusetningar fyrir 12-15 ára á þriðjudag og miðvikudag
Heilsugæsla HSS bíður uppá Covid-19 bólusetningu fyrir börn á aldrinum 12-15 ára á Suðurnesjum dagana 24.-25. ágúst.
Um er að ræða börn í 7. - 10. bekk, en börn í 7. bekk sem ekki verða 12 ára fyrr en eftir 1. september fá boðun í bólusetningu síðar í haust.
Foreldrar/forráðamenn barna munu fá boð í gegnum Mentor, en forráðamaður sem óskar eftir bólusetningu fyrir barn sitt þarf að fylgja barni í bólusetningu eða senda staðgengil 18 ára eða eldri með umboð.
Bólusetningar hefjast í Grindavík á þriðjudaginn, 24. ágúst. Bólusett verður í Gjánni.
Grindavíkurskóli
7. - 8. bekkur mæta kl. 13:00
9. - 10. bekkur mæta kl. 13:30
Bólusetningar fyrir börn í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Voga fara fram miðvikudaginn 25. ágúst. Bólusett verður í Stapa í Hljómahöll.
Akurskóli
7. - 8. bekkur 9:00
9. - 10. bekkur 9:15
Stapaskóli
7. - 8. bekkur 9:30
9. - 10. bekkur 9:45
Myllubakkaskóli
7. - 8. bekkur 10:00
9. - 10. bekkur 10:15
Njarðvíkurskóli
7. - 8. bekkur 10:30
9. - 10. bekkur 10:45
Holtaskóli
7. - 8. bekkur 11:00
9. - 10. bekkur 11:15
Heiðarskóli
7. - 8. bekkur 11:30
9. - 10. bekkur 11:45
Háaleitisskóli
7. - 8. bekkur 13:00
9. - 10. bekkur 13:15
Gerðaskóli
7. – 10. bekkur 13:30
Stóru-Vogaskóli
7. – 10. bekkur 13:45
Sandgerðisskóli
7. – 10. bekkur 14:00