Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Codland fræðir unga fólkið
Líf og fjör í heimsókn hjá Codland.
Föstudagur 15. ágúst 2014 kl. 09:12

Codland fræðir unga fólkið

Vinnuskólakrakkar kynntu sér sjávarútveg og vinnslu.

Codland vinnuskólinn var haldinn í lok júlí í samstarfi við Grindavíkurbæ en hann hefur að markmiði að efla áhuga ungs fólks á sjávarútveginum og sýna þátttakendum nýja sjávarútveginn og þau víðfeðmu áhrif sem hann hefur á okkar samfélag. Nemendur Vinnuskóla Grindavíkurbæjar í 8. og 9. bekk var gefinn kostur á því að vera með í Codland Vinnuskólanum og fá þátttakendur fá greitt í samræmi við launatöflu vinnuskólans. Þetta er annað sumarið í röð sem Vinnuskóli Codland er starfræktur. Þetta kemur fram á vef Grindavíkurbæjar.

Nemendur fengu fræðslu um íslenskan sjávarútveg, fóru í vettvangsferðir í fiskvinnslur og skip, fengustarfskynningar, kynntust starfsemi frumkvöðla og unnu verkefni í nýsköpun.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Í samtali við fréttasíðuna Kvótinn segir Davíð Tómas Davíðsson, framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar hjá Codland, að fyrirtækið hafi starfrækt námskeið á vegum vinnuskólans í Grindavík, þar sem krökkum sem hafa staðið sig vel yfir sumarið var boðið að taka þátt. „Markmið námskeiðsins er að kynnast sjávarútveginum og þeim breytingunum sem eru að eiga sér stað innan hans um þessar mundir. Vonumst við þannig til að sýna þeim hversu víðtækur starfsvettvangur hann er orðin og krefjist fólks með fjölbreytta menntun og bakgrunn,“ segir Davíð Tómas.

Byrjað hafi verið að halda kynningu um Codland þar sem rætt var um fullvinnslu fisksins og hvernig ný tækifæri væru að opnast í líftækniiðnaðinum. Síðan var farið til Haustaks og Ægis til að kynna krökkunum vinnslu aukaafurða eins og þurrkun og niðursuðu á fiskilifur.

„Einnig fórum við með þau til Þekkingarseturs Suðurnesja en þar fara fram rannsóknir á lífríkinu og þeim sagt frá hversvegna þær eru mikilvægar fyrir sjálfbæra og ábyrga nýtingu sjávarins,“ segir Davíð Tómas. Þar var hent út krabbagildru til að sýna þeim lífríkið í höfninni og þeim var boðið um borð í línuveiðibátinn Valdimar GK og sagt frá lífinu þar um borð.

Að lokum fengu krakkarnir að spreyta sig á að hanna og útfæra sjávar/fiskitengt forrit. Sigurforritið var „Veiðilínan“, sérhæfður samfélagsmiðill fyrir stangveiðimenn þar sem þeir geta loggað sig inn svipað eins og „foursquare“ og sagt hvernig veiðin innan hverrar ár gengi, hvar væri hann að bíta o.s.frv. Þar væri líka inni spjallborð og hver notandi væri með persónulega síðu ekki ósvipuð Facebook, þar kæmi fram hversu mikið hver notandi hefði veitt, hvar þeir hefðu veitt ásamt myndum „statusum“ uppáhalds veiðigræjum og fleira.