Bygg
Bygg

Fréttir

Century Aluminum vill byggja stórt álver í Helguvík
Laugardagur 14. maí 2005 kl. 11:50

Century Aluminum vill byggja stórt álver í Helguvík

Century Aluminum, eigandi Norðuráls, mun reisa álver í Helguvík á allra næstu árum. Viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð í gærkvöldi. Undirbúningur málsins hefur staðið síðustu mánuði, annars vegar hjá Century Aluminium og hins vegar hjá Reykjaneshöfn og Hitaveitu Suðurnesja hf. Fréttatilkynningar er að vænta frá þessum aðilum síðar í dag.

Í dag rekur Norðurál 90 þúsund tonna álver á Grundartanga en álverið mun stækka í 212 þúsund tonn um mitt næsta ár, m.a. vegna orkukaupa frá Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur. Stækkunarmöguleikar Reykjanesvirkjunar eru miklir og þá kom fram á aðalfundi HS í vetur að til stendur að auka raforkuframleiðslu í Svartsengi um 30 Mw, m.a. með betri nýtingu á borholum. Þegar Norðurál hefur lokið uppbyggingu álversins á Grundartanga síðla árs 2008 í 260 þúsund tonn, þá er það álver litlu stærra en fyrirhugað álver í Helguvík.

Álframleiðslugeta samstæðu Century Aluminum nemur 615 þúsund tonnum á ári. Auk Norðuráls á fyrirtækið og rekur 244 þúsund tonna álver í Hawesville, Kentucky, 170 þúsund tonna álver í Ravenswood, Vestur-Virginíu, og á 49,6% hlut í 222.000 tonna álveri í Mt. Holly, Suður-Karolínu. Alcoa Inc. á hinn hluta álversins og er samstarfsaðili Century þar. Auk þess á Century helmings hlut í 1,25 milljóna tonna súrálsverksmiðju í Gramercy, Louisiana.  Höfuðstöðvar Century eru í Monterey í Kaliforníu.

Myndin: Úr framtíðaráformum athafnasvæðisins í Helguvík. Þar er nú vilji til að reisa stórt álver og verður gefin út fréttatilkynning um málið síðar í dag.

Bílakjarninn
Bílakjarninn