Fimmtudagur 21. mars 2002 kl. 14:30
Byrgið hlýtur rausnarlegann stuðning

Undanfarið hefur athyglin beinst mikið að Byrginu í Rockville og því góða starfi sem Þar fer fram. Aðaleigandi Rúmfatalagersins, Jákup Jacobsen, og forsvarsmenn verktakafyrirtækisins ÓS, skoðuðu aðstöðuna í endurhæfingarstöð Byrgisins í Rockville í gærkvöld. Til stóð að Jóhannes Jónsson í Bónus kæmi líka en hann forfallaðist á síðustu stundu. Ástæða heimsóknarinnar var að þessir aðilar hafa styrkt starfsemina vel á undanförnum misserum og komu til að sjá hvernig fjármununum hefði verið varið. Bónus hefur auk beinna peningaframlaga styrkt Byrgið með því að gefa matvæli og tæki og til stendur að fyrirtækið greiði fyrir laun framkvæmdastjóra meðferðarstöðvarinnar. Rúmfatalagerinn hefur einnig stutt starfsemina rausnarlega.