BYKO færði nýrri pípulagningadeild FS veglega gjöf
Nú í haust hófst nám í pípulögnum við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Af því tilefni færði BYKO pípulagnadeildinni ýmis tæki og búnað.
Um er að ræða átta pressuvélar frá General Fittings og tvær Rehau hulsuvélar en auk þess lánar BYKO snittvél út önnina. Að auki fékk deildin átta klósettkassa og skálar, fimm handlaugartæki, sturtutæki, eldhústæki og handlaugar auk fylgihluta. Um mjög veglega gjöf er að ræða sem á eftir að nýtast nemendum vel.
Það var Áskell Viðar Bjarnason frá BYKO sem kom færandi hendi en Kristján Ásmundsson skólameistari og Jóhannes Gylfi Ólafsson kennari í pípulögnum tóku á móti henni fyrir hönd skólans.