Bygg
Bygg

Fréttir

Byggja upp öflugt ljósleiðarakerfi á Reykjanesi
Miðvikudagur 24. apríl 2013 kl. 15:45

Byggja upp öflugt ljósleiðarakerfi á Reykjanesi

- í tengslum við sæstrenginn Emerald Express

Sæstrengurinn Emerald Express, sem lagður verður milli N-Ameríku og Evrópu með tengingu við Ísland, kemur að landi í Mayo-sýslu á vesturströnd Írlands. Samningur þar að lútandi var undirritaður á Írlandi mánudaginn 22. apríl sl. Tengingin við Ísland kemur á land rétt við Grindavík en vegna tengingarinnar mun Emerald Networks byggja upp öflugt ljósleiðarakerfi á Reykjanesi. Gert er ráð fyrir að strengurinn verði tekinn í gagnið seint á næsta ári.

Samningurinn kveður á um uppbyggingu á landstöð Emerald í Mayo-sýslu, margvíslega þjónustu við strenginn sem miðar að því að þróa eitt háþróaðsta fjarskiptakerfi sem nú þekkist og nýta sem best þá möguleika sem Emerald sæstrengurinn býður uppá.

Sæstrengurinn byggir á nýrri tækni og verður afkastamesta og hraðasta gagnaflutningstenging sem um getur milli Bandaríkjanna og Evrópu. Flutningsgeta strengsins verður í  upphafi 40.000 gígabitar á sekúndu en strengurinn byggir á nýrri tækni sem auðveldar til muna uppfærslur á afkastagetu hans.

„Samningurinn við Mayo-sýslu er mikilvægur fyrir Emerald og þróun fjarskipta í heiminum þar sem sífellt meiri eftirspurn er eftir bandvídd vegna aukinnar margmiðlunar og þróunar á hugbúnaðar- og fjarskiptamarkaðnum,” segir Dr. William C. Marra, forstjóri Emerlad Networks.

Íslenska fjárfestingafélagið Thule Investments sér um fjármögnun strengsins á Íslandi en heildarkostnaður við framleiðslu og lagningu Emerald Express er áætlaður 320 milljónir bandaríkjadala, þar af er gert ráð fyrir að tengingin við Ísland kosti 45 milljónir dala.

Bílakjarninn
Bílakjarninn