Byggja 60 rýma hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að heimila velferðarráðherra og fjármálaráðherra að ganga til samninga við Reykjanesbæ um byggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis. Framkvæmdir verða fjármagnaðar með svokallaðri leiguleið.
Haustið 2009 samþykkti ríkisstjórnin áætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila í níu sveitarfélögum, samtals 361 hjúkrunarrými og að velferðarráðuneytið og fjármálaráðuneytið myndu leita eftir samstarfi við sveitarfélögin um framkvæmdirnar. Samþykkt ríkisstjórnarinnar byggðist á framkvæmdaáætlun félags- og tryggingamálaráðuneytisins frá árinu 2008 þar sem mat var lagt á þörf fyrir uppbyggingu hjúkrunarrýma um allt land.
Reykjanesbær
Í upphaflegri áætlun var gert ráð fyrir að byggt yrði nýtt 30 rýma hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ en að hjúkrunarheimilið Hlévangur yrði notað áfram og fjölbýlum þar breytt í einbýli. Fyrr í sumar lagði bæjarstjórn Reykjanesbæjar fram tillögu við velferðarráðherra um að byggja nýtt 60 rýma heimili og leggja niður Hlévang. Á þetta var fallist og verður gengið til samninga við bæjarfélagið á þeim forsendum.
Fjármögnun framkvæmda
Heimamenn munu annast hönnun og byggingu hjúkrunarheimilanna í samræmi við viðmið ráðuneytisins, fjármögnunin verður tryggð með láni frá Íbúðalánasjóði en Framkvæmdasjóður aldraðra stendur undir húsaleigu til viðkomandi sveitarfélags og reiknast hún sem ígildi stofnkostnaðar.
Árlegar leigugreiðslur Framkvæmdasjóðs aldraðra vegna heimilanna tveggja á Ísafirði og í Reykjanesbæ verða um 180 milljónir króna. Árlegur rekstrarkostnaður til viðbótar þeim heimildum sem fyrir eru nemur um 160 milljónum króna.