Byggingakrani kominn á Miðnestorg
Framkvæmdir ganga vel við Miðnestorg í Sandgerði þar sem nýr miðbær mun rísa eftir um eitt ár. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að jarðvegsvinnu á svæðinu, en nú hefur verið fluttir byggingakrani á svæðið sem bendir til að framkvæmdir við byggingarnar hefjist innan skamms. Framkvæmdin er á vegum Sandgerðisbæjar, Miðnestorgs ehf og Búmanna, en aðalverktaki er Húsagerðin ehf. Um er að ræð 3ja hæða byggingu, alls um 3.200 fermetra. Í húsinu verður bókasafn, bæjarskrifstofur, þjónustustarfsemi og miðjukjarni með þjónustueldhúsi og íbúðum.
Gengið verður frá lóð með malbikuðum bílastæðum. Á lóðinni er gert ráð fyrir fjölskyldugarði og tjörn.
Myndin: Frá frá framkvæmdum við Miðnestorg í Sandgerði. VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson.