Bygging hjúkrunarrýmis Nesvalla tefst um tvö til þrjú ár
-málið tefst í Heilbrigðisráðuneytinu vegna nýrra reglna á meðan 30 manns bíða í brýnni þörf eftir hjúkrunarrými-
Sá flöskuháls sem verið hefur í Heilbrigðisráðuneytinu vegna uppbyggingar hjúkrunarrýmis við Nesvelli mun líklega verða til þess að framkvæmdir tefjist í tvö til þrjú ár. Vegna nýrra viðmiða sem ráðuneytið hefur sett þarf að teikna og hanna hjúkrunarrýmið á Nesvöllum upp á nýtt. Á meðan bíða 30 manns í brýnni þörf eftir hjúkrunarrými.
Þetta kom fram á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ í vikunni. Talsverðar umræður urðu um öldrunarmálin almennt eftir fyrirspurn Sveindísar Valdimarsdóttur (A) um stöðu mála. Sveindís velti upp þeirri spurningu hvort þessi málaflokkur væri betur kominn undir forsjá sveitarfélagsins fremur en ríkis með þar til gerðum þjónustusamningum.
Í svörum Árna Sigfússonar, bæjarstjóra (D), kom fram að vonir hefðu staðið til að samkomulag stæðist, sem gert var í ráðherratíð Jóns Kristjánssonar. Í því var gert ráð fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimilis með 30 hjúkrunarrýmum sem tekið yrði í notkun sumarið 2007. Núverandi heilbrigðisráðherra hafi lýst því yfir að samþykki væri fyrir þessum 30 rýmum og staðfest þar með fyrra samkomulag án þess þó að gefa upp nákvæmlega hvenær bygging gæti hafist. Árni gat þess að viðræður við ráðuneytið stæðu yfir en upplýsti að þar væru embættismenn búnir að setja ný viðmið um uppbyggingu hjúkrunarrýma. Þær teikningar sem gerðar voru á sínum tíma fyrir Nesvellli samræmdust ekki þessum nýju kröfum og það tefði framvinduna ef gera þyrfti nýjar teikningar.
Hönnun hjúkrunarrýmis á Nesvöllum gerir ráð fyrir 15 herbergja göngum sem tengjast í miðlægum þjónustukjarna. Heilbrigðisráðuneytið er hins vegar í dag að horfa í fyrirkomulag að danskri fyrirmynd. Í því er reiknað er með 10 íbúa einingum þar sem meira er lagt í stærri einstaklingsrými og minni sameignarrými.
Ljóst er að þetta mun tefja framvindu málsins verulega. Vegna breyttra viðmiða þarf að gera nýja þarfagreiningu að kröfu ráðuneytisins og endurhanna rýmið til samræmis við það. Þá er spurning hvort hægt er að breyta fyrirliggjandi teikningum eða hvort teikna þarf rýmið upp á nýtt. Ljóst er að þetta tekur talsverðan tíma og því er ekki víst að nýtt hjúkrunarými verði opnað fyrr en síðla árs 2009 eða jafnvel 2010, samkvæmt því sem fram kom í máli Böðvars Jónssonar (D).
Mynd: Yfirlitsteikning af Nesvöllum. Framkvæmdir eru hafnar en óvissa ríkir um hvenær hægt verður að byrja á hjúkrunarrýminu.