HSS
HSS

Fréttir

Byggðamálaráðherra ræddi við héraðsfréttablaðamenn
Fimmtudagur 4. mars 2010 kl. 10:30

Byggðamálaráðherra ræddi við héraðsfréttablaðamenn

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hópur fólks frá níu bæjar- og héraðsfréttablöðum af landsbyggðinni kom saman í Reykjavík nýlega. Er það um helmingur þeirra miðla sem enn eru starfandi utan höfuðborgarsvæðisins.


Samtök bæjar- og héraðsfréttablaða voru upphaflega stofnuð 1988 og funduðu reglulega fram til 1997. Síðan hefur þessi félagsskapur legið í dvala. Félagið var þó ekki endurvakið með formlegum hætti á fundinum á föstudaginn, en rætt var um að það komi til greina í haust enda til gagns að miðla ýmsum fróðleik milli blaðanna.
Á fundinum kom fram að aldrei væri mikilvægara en nú fyrir hið opinbera, fyrirtæki og almening að hlúa vel að bæjar- og héraðsfréttablöðum, í ljósi þess að í kjölfar erfiðleika í rekstri stærri fjölmiðla hefur vægi landsbyggðarinnar dregist verulega saman í þeim.


Gestur fundarins var Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sem jafnframt fer með byggðamál í ríkisstjórninni. Ræddi hún við fundarmenn um atvinnu- og byggðamál, svaraði fyrirspurnum um hvað efst væri á baugi á vettvangi ríkisstjórnarinnar og ráðuneytis hennar og hlýddi á hvað starfsmenn héraðsmiðlanna höfðu fram að færa.