Mánudagur 6. október 2003 kl. 10:23
Búsinu stolið
Bifreiðareigandi við Smáratún í Keflavík varð að sjá á eftir búsi sínu ofan í óprúttinn vegfaranda um helgina. Skömmu fyrir hádegi á laugardag var tilkynnt um innför í bifreið við Smáratúnið þar sem tveimur kippum af bjór var stolið. Um vær að ræða Thule-bjór í 0,5 lítra dósum.