HSS
HSS

Fréttir

Föstudagur 6. júlí 2001 kl. 09:58

Búmenn byggja meira

Innan skamms munu hefjast framkvæmdir við byggingu sex íbúða af 10 sem Búmenn ætla að byggja í Grindavík. Félagið fékk lóðir fyrir fimm parhús við Skipastíg og Árnastíg í Grindavík. Lóðirnar eru á nýju byggingarsvæði.
Í áætlunum Búmanna er gert ráð fyrir að hús í fyrri áfanga verði tilbúin haustið 2002.
Búmenn hafa lokið byggingu húsnæðis í Garði og framkvæmdum eru að ljúka í Sandegrði. Nú er verið að auglýsa eftir umsóknum um íbúðirnar í Grindavík. Mikill áhugi hefur verið eftir íbúðum hjá félaginu en þær eru sniðnar fyrir fólk sem er 50 ára og eldra. Félagið er nú í viðræðum við verktaka í Reykjanesbæ um möguleika á að byggja íbúðir þar og félagið fékk lóðarloforð fyrir íbúðum í Vogum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn