Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Búist við 2,3 milljónum farþega um Keflavíkurflugvöll næsta ár
Laugardagur 26. nóvember 2011 kl. 14:16

Búist við 2,3 milljónum farþega um Keflavíkurflugvöll næsta ár

Á næsta ári er gert ráð fyrir að tæplega 2,3 milljónir farþega fari um Keflavíkurflugvöll. Forsendan er meðal annars sú aukning sem flugfélög hafa boðað auk þess sem ný flugfélög hafa boðað komu sína á nokkrum flugleiðum milli Keflavíkurflugvallar og Evrópu. Þetta kemur fram á vef innanríkisráðuneytisins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Alls fóru tæplega 1,9 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll á síðasta ári og á fyrstu 10 mánuðum þessa árs hefur farþegum fjölgað um 19,3% miðað við sama tíma í fyrra. Á sumrin eru 20 flug á álagstímum en hliðin eru aðeins 14 og því eru 6 hlið tvínotuð. Á næsta ári stefnir í aukningu og áfram næstu ár og er talið að ráðast þurfi í umfangsmiklar fjárfestingar til að geta meðal annars bætt við flughlöðum og stækkað flugstöðvarbygginguna. Á meðan ekki verður unnt að ráðast í miklar framkvæmdir er leitað allra leiða til að nýta núverandi mannvirki og hagræða sem mest til að mæta aukningunni.

Lufthansa umsvifamest í íslenska flugstjórnarsvæðinu

Íslenska flugstjórnarsvæðið er alls um 5,4 milljónir ferkílómetra og fljúga árlega kringum 100 þúsund flugvélar um svæðið alls um 140 milljón km vegalengd. Gert er ráð fyrir 3,9% aukningu flugumferðar yfir Norður-Atlantshafið á næsta ári. Um það bil fjórðungur flugumferðar á leið yfir Norður-Atlantshaf fer um íslenska flugstjórnarsvæðið sem hefur þá sérstöðu að vera sveigjanlegt hvað varðar flugleiðir og flughæðir sem skiptir miklu máli varðandi flugtíma og eldsneytisnotkun. Lufthansa er umsvifamest í flugi um íslenska flugstjórnarsvæðið þegar litið er til floginna kílómetra en alls flugu vélar félagsins um 13 milljónir km á liðnu ári. Icelandair fór hins vegar flestar flugferðirnar eða um 11 þúsund á árinu.