Buena Vista í Bláa lóninu
Kúbversku tónlistarmennirnir í Buena Vista Social Club, sem héldu tónleika í Laugardalshöll í gær og spila aftur í kvöld, komu við í Bláa lóninu í dag. Ekki var um allt bandið að ræða, heldur eingöngu meðlimi úr því.
Þeir fengu sér sundsprett og var síðan boðið upp á íslenskan rjómaís á eftir.
Ljósmyndari okkar í Bláa lóninu tók meðfylgjandi myndir.
Þeir fengu sér sundsprett og var síðan boðið upp á íslenskan rjómaís á eftir.
Ljósmyndari okkar í Bláa lóninu tók meðfylgjandi myndir.