Fréttir

Búast við fleirum á HSS næstu daga vegna inflúensunnar
Þriðjudagur 17. janúar 2017 kl. 14:30

Búast við fleirum á HSS næstu daga vegna inflúensunnar

Inflúensan hefur gert vart við sig og má gera ráð fyrir að þeim sem leita til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja vegna hennar muni fjölga nokkuð næstu daga og vikur. Á vef Landlæknisembættisins segir að flensan sé af stofni sem leggist sérstaklega þungt á eldri borgara, sem er í samræmi við staðfest tilfelli hér á landi upp á síðkastið.

Á vef HSS er minnt á leiðbeiningar sem læknar stofnunarinnar hafa tekið saman um varnir gegn inflúensusmiti. Þær eru eftirfarandi:

Public deli
Public deli



Inflúensa lýsir sér oftast með háum hita og beinverkjum, oft með höfuðverk og þurrum hósta. Sumir fá einnig sára hálsbólgu og stundum eru til staðar einkenni frá meltingarfærum. Verstu einkennin ganga yfir á 2 til 3 sólarhringum og undantekningalítið jafnar fólk sig án nokkurra vandkvæða. Ekki er til lækning við inflúensu en almenn verkjalyf svo sem parasetamól og bólgueyðandi lyf svo sem íbúfen geta mildað einkenni mikið. Til eru veirulyf sem draga úr einkennum svo sem tamiflu og relenza, sérstaklega ef þau eru gefin strax en flestir jafna sig fljótt og vel án nokkurra inngripa og eru að fullu frískir á viku.

Inflúensa er gríðarlega smitandi og því er áríðandi að fólk takmarki eins og unnt er samskipti við annað fólk meðan á veikindum stendur og gæti sérstaklega að handþvotti og öðru hreinlæti. Almennt er ráðlegt að halda sig heima við í að minnsta kosti viku í kringum einkenni, bæði til að ná að jafna sig og til að draga úr útbreiðslu flensunnar.



Aldrei er of seint fyrir fríska einstaklinga að bólusetja sig við inflúensu, bólusetningin minnkar líkur á smiti um um það bil 60 prósent og þeir sem eru bólusettir en veikjast fá yfirleitt mun vægari einkenni. Ekki er hægt að fá flensu gegnum bólusetningu.

Til að draga úr álagi á vaktþjónustu HSS og draga úr útbreiðslu smits er fólk beðið um að íhuga fyrrgreind atriði áður en leitað er til heilsugæslunnar. Með því að hringja í vaktsímann 1700 má fá ráðleggingar og aðstoð án þess að þurfa að mæta á staðinn.