Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Brynjar Pétursson aðstoðar UMFG
Þriðjudagur 30. nóvember 2004 kl. 15:31

Brynjar Pétursson aðstoðar UMFG

Það er að mörgu að hyggja þegar þjálfun barna og unglinga í íþróttum er annars vegar og margir sem leggja hönd á plóginn.  Forráðamenn knattspyrnudeildar UMFG leggja áherslu að krakkarnir fái vandaða þjálfun og fræðslu og hafa fengið Brynjar Pétursson nuddara til liðs við sig. Hann hefur undanfarin 2 ár liðsinnt þjálfurum yngri flokka við að fræða krakkana um nauðsynlegt mataræði og ábyrgð einstaklingsins á eigin árangri.

„Það er nauðsynlegt að allir geri sér grein fyrir því að til að ná hámarks árangri þarf að borða reglulega hollan mat og stunda alhliða líkamsþjálfun.  Um það erum við að ræða á þessum kvöldfundum,“ segir Brynjar í viðtali við VF.  „Þegar farið er að tala við þessa krakka kemur í ljós að þau drekka flest of mikið gos og borða ekki nægjanlega hollan mat og borða líka óreglulega sem er mjög slæmt.  Við erum að segja þeim að þau beri sjálf ábyrgð á því að gera hlutina rétt og bendum þeim á hvað sé rétt og hvað rangt.“

Er þetta einn liður í knattspyrnuþjálfuninni og kennir Brynjar þeim einnig sérstakar magaæfingar og urðu strákarnir dálítið skrítnir á svipinn þegar sýnikennslan fór fram en þessar æfingar styrkja neðsta hluta magavöðvanna þannig að hreyfingarnar minntu á eitthvað sem strákarnir flissuðu yfir.  Með þessum fræðslukvöldum er einnig verið að vinna gegn brottfalli iðkenda og er það UMFG til sóma.
VF-myndir/Þorsteinn Gunnar Kristjánsson

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024