Bryndís hlýtur barnabókaverðlaun menntaráðs
Bryndís Guðmundsdóttir hlaut í dag barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar fyrir bókina Einstök mamma. Margrét E. Laxness myndskreytti bókina.
Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að verðlaun fyrir besta þýðingu barnabókar hafi Magnús Ásmundsson hlotið fyrir Dansar Elías?eftir sænsku skáldkonuna Katarinu Kieri.
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri og Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður menntaráðs, afhentu barnabókaverðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða í dag að viðstöddum fjölmörgum gestum.
Einstök mamma fjallar um stúlkuna Ásdísi sem elst upp með heyrnarlausri móður. Höfundur lýsir á heiðarlegan hátt tilfinningum stúlkunnar, viðbrögðum samfélagsins við heyrnarleysi og skondnu og skemmtilegu fjölskyldulífi. Í niðurstöðum dómnefndar segir að sagan sé mjög vel skrifuð og sögð af einstöku næmi og skilningi á viðfangsefninu. Þá séu myndskreytingar Margrétar E. Laxness mjög góðar og vinni ákaflega vel með sögunni. Salka gaf bókina út.
Í Dansar Elías?segir af 16 ára strák sem hefur orðið fyrir þeirri þungbæru reynslu að missa móður sína. Í niðurstöðum dómnefndar segir að þýðing Magnúsar Ásmundssonar sé lipur og falleg. Hún styðji vel við höfundarverkið og komi því glæsilega á framfæri við íslenska lesendur. Útgefandi er Fjölvi.