MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Bryggjan í Grindavík opnar á ný
Fimmtudagur 12. júní 2025 kl. 15:56

Bryggjan í Grindavík opnar á ný

Veitingastaðurinn Bryggjan Grindavík opnar aftur á laugardaginn, 14. Júní kl. 11.00 en þetta er fyrsta opnun eftir jarðhræringarnar í Grindavík. Fyrirtækið hefur verið lokað frá 10. nóvember 2023 þegar Grindavík var rýmd á einni nóttu. 

Bryggjan verður opin alla daga vikunar frá 11.00 til 16.00 og mun m.a. bjóða aftur upp á sína heimsfrægu humarsúpu. 

Bryggjan komst á heimskortið þegar Condé Nast Traveler sem er eitt virtasta ferðatímarit á heimsvísu, birtu lista yfir tuttugu bestu málsverði og matarupplifanir í heiminum á árinu 2022. Tímaritið lýsir m.a. annars yfir í greininni að heimsókn á Bryggjuna í Grindavík sé nauðsynleg þegar Ísland er heimsótt. Á notalega veitingastaðnum hafi þau fengið bestu humarsúpu sem þau hafa fengið hingað til með nýbökuðu brauði og frírri áfyllingu.  Hugur þeirra leitar reglulega aftur og aftur til fiskimannastaðarins í Grindavík.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Hér er hægt að lesa greinina 

Erlendir ferðamenn hafa verið ánægðir með staðsetninguna við höfnina þar sem reglulega er verið að landa fiski fyrir framan Bryggjuna.   Netagerð er starfrækt á veitingastaðnum þar sem gestir geta upplifað netagerðastemningu á meðan þeir njóta veitinga og drykkja. 

Frekari upplýsingar veita:
Rakel Gunnlaugsdóttir, rekstrarstjóri.

Netfang: [email protected]  

Sími: 766-2656

Um Bryggjuna í Grindavík

Sjórinn og mannlífið á bryggjunni hefur alltaf haft mikið aðdráttarafl fyrir gesti Bryggjunar í Grindavík. Staðsetning veitingastaðarins er niðri við höfnina í Grindavík þar sem fiskinum er landað fyrir framan veitingastaðinn. Núna streyma ferðamenn aftur til Grindavíkur til að njóta gestrisni heimamanna sem bjóða upp á eitt ferskasta hráefni á landinu.

Upphaflega var húsið við höfnina byggt árið 1979 sem netagerðaverkstæði af tveimur bræðrum og netagerðarmönnum, þeim Kristni og Aðalgeiri Johanssen. Hér var alltaf eingöngu stunduð netagerð í öllu þessu húsi. Síðan fóru ferðamenn að birtast á bryggjunni og þeir sóttu í að drekka kaffi með köllunum í netagerðinni og spjalla. Þá fóru eiginkonurnar að baka pönnukökur og kökur með kaffinu og allir voru svo glaðir að fá gesti. Bræðurnir opnuðu svo kaffihús á neðri hæðinni í Netagerðinni árið 2009 sem varð mjög vinsælt fyrir heimamenn og ferðamenn.

Allir velkomnir!

Hin rómaða humarsúpa!
Margir þekktustu tónlistarmenn Íslands hafa troðið upp á Bryggjunni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn