Þriðjudagur 3. febrúar 2004 kl. 20:53
Brutust inn í bíla í Sandgerði: kannabisplöntur fundust við húsleit

Um sjöleytið í morgun var lögreglunni í Keflavík tilkynnt um innbrot í þrjá bíla í Sandgerði þar sem rúður höfðu verið brotnar og teknar úr þeim m.a. framhliðar hljómflutningstækja. Stuttu síðar var lögreglunni tilkynnt um læti í húsi nálægt þeim stað sem brotist hafði verið inn í bílana og fóru lögreglumenn á staðinn. Fyrir utan húsið fannst þýfi úr bílunum sem brotist var inn í.
Lögreglan hafði afskipti af þremur mönnum sem voru í húsinu og var einn þeirra með áverka á höfði eftir barsmíðar. Við húsleit fundust 33 kannabisplöntur og við nánari húsleit fannst eitt gramm af amfetamíni, auk þess sem einn mannanna var með hassmola á sér. Mennirnir voru allir handteknir og yfirheyrðir.