Bruninn í Skildi endurútgefinn
Vegna fjölda áskorana hefur bókin um brunann í Skildi verðið endurútgefin en hún seldist upp fyrir síðustu jól.
Bókin fjallar um þann hörmulega atburð er eldur varð laus á jólatrésskemmtun barna í Keflavík þann 30. desember 1935 með þeim afleiðingum að 10 manns létu lífið, Margir hlutu slæm brunasár og báru þess aldrei bætur. Bruninn er talinn sá mannskæðasti í sögu Íslands frá því á Sturlungaöld.
Í bókinni eru birt viðtöl við þá sem sóttu þessa örlagaríku skemmtun. Jafnframt eru teknar saman helstu heimildir sem til eru um atburðinn og brugðið upp mynd af bæjarlífinu í Keflavík og nágrenni á þessum tíma.