Bilakjarninn
Bilakjarninn

Fréttir

Bruninn í Bakkavör upplýstur
Mánudagur 8. júlí 2002 kl. 10:39

Bruninn í Bakkavör upplýstur

Rannsóknadeild lögreglunnar í Keflavík hefur upplýst orsök elds sem kviknaði í fiskvinnsluhúsi Bakkavarar í Keflavík á laugardag og liggur fyrir að fimm 12-14 ára gamlir drengir eiga þar hlut að máli.Drengirnir voru að leika sér með eld á efstu hæð fiskvinnsluhússins og misstu stjórn á eldinum þannig að um óviljaverk var að ræða, segir í frétt Morgunblaðsins. Ekkert rafmagn er á húsnæðinu og því var strax ljóst að eldurinn kviknaði ekki af þeim sökum. Þá sá nágranni unglinga hlaupa í burtu skömmu áður en eldsins varð vart.

VF-mynd: Guðjón Kjartansson
Bílakjarninn
Bílakjarninn