Brunaði á miklum hraða fram úr lögreglubifreið
Ökumaður ók bifreið sinni á miklum hraða fram úr lögreglubifreið sem var í eftirlitsferð á Reykjanesbraut um helgina. Það reyndist vera erlendur ferðamaður og mældist bifreið hennar á 122 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. Blástur í áfengismæli renndi stoðum undir að viðkomandi hefði neytt áfengis og var hún því handtekin og færð á lögreglustöð.
Þá voru nokkrir ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefnaakstur. Tveir þeirra reyndust sviptir ökuréttindum ævilangt. Annar þeirra, kona á fertugsaldri, reyndi að villa á sér heimildir með því að gefa upp kennitölu og nafn annars einstaklings en viðurkenndi svo á endanum að þær upplýsingar tilheyrðu systur hennar.
Enn fremur voru höfð afskipti af ökumanni sem svaf ölvunarsvefni undir stýri í bifreið sinni. Í farþegasæti við hlið hans fundu lögreglumenn tveggja lítra gosflösku með landa en lítið var eftir í henni. Viðkomandi var færður á lögreglustöð þar sem sýnatökur bentu til þess að hann hefði neytt kannabisefnis.
Skráningarnúmer voru svo fjarlægð af nokkrum bifreiðum sem vorur ótryggðar eða óskoðaðar.