Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Brunað um á skriðdreka í Reykjanesbæ?
Miðvikudagur 21. apríl 2004 kl. 22:52

Brunað um á skriðdreka í Reykjanesbæ?

Íslendingar geta senn tekið sér far með skriðdreka á Reykjanesi nái áform Stefáns Guðmundssonar, sem rekur körtubraut við Reykjanesbæ, fram að ganga. Áformar hann í samstarfi við fjárfesta að kaupa skriðdreka í Bretlandi og bjóða upp á ferðir með honum á sérstöku svæði í grennd körtubrautarinnar.
„Þetta hefur verið í undirbúningi frá í desember og við eigum von á tilboði í breskan dreka í lok vikunnar eða strax eftir helgi. Þegar það liggur fyrir munum við sækja um leyfi, ef einhverra er þörf, og flytja hann sem fyrst hingað,“ sagði Stefán í samtali við fréttavef Morgunblaðsins í dag.
Um er að ræða skriðdreka sem hefur sæti fyrir 6-8 manns. Við körtubrautina ræður fyrirtæki Stefáns, Reisbílar, yfir 95.000 fermetra svæði þar sem hugmyndin er að aka drekanum um í sérstakri braut.

Myndin: Breskur skriðdreki í "góðum gír".

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024