Brú milli heimsálfa vígð
Brú milli heimsálfa var formlega vígð í dag við hátíðlega athöfn þar sem Davíð Oddsson forsætisráðherra, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra klipptu á borða milli Evrópu og Ameríku.
Brúnni var komið fyrir yfir gjá sem myndast hefur vegna hreyfingar Evrópu- og Ameríkujarðflekanna sem rekast saman og þrístast í sundur vegna jarðgosa neðan jarðar. Flekaskilin ganga í gegnum Ísland, frá Reykjanesi og norður fyrir land, og eru þau sýnileg víða.
Hugmyndin um gerð slíkrar brúar vaknaði fyrir um 8 árum og var það Jóhann D. Jónsson, ferðamálafulltrúi Reykjaness, sem átti hana. Hugmyndin hefur því verið lengi í gangi en ekki komist í framkvæmd fyrr en nú.
Brúin var smíðuð af Íslenskum Aðalverktökum sem eru aðal stuðningsaðili verkefnisins og er hún 18m löng og situr á gjánni þar sem hún er um 6m há. Fólki gefst kostur á að fara yfir brúna hvenær sem er, því að kostnaðarlausu, og verða bílastæði skammt frá henni þar sem fólk getur lagt bílum sínum á meðan það gegnur milli heimsálfa. Ætlunin er að brúin verði sjálfbær því þeir sem svo ganga yfir brúna og ná þeim merka áfanga að ganga frá Evrópu til Ameríku eiga þess kost að fá viðurkenningu þess efnis að hafa gengið yfir flekana. Ekki væri það ónýtt að eiga slíkt skirteini til sönnunar þess að hafa gengið milli heimsálfa en markaðs- og atvinnumálastofnun Reykjanesbæjar sér um að úthluta slíkum viðurkenningum gegn vægu gjaldi.