Fimmtudagur 16. september 1999 kl. 15:40
BROTTFALL ÚR LÖGREGLUNNI:

Alvarleg staða hjáEkki hefur framhjá nokkrum manni farið ágreiningurinn á milli Lögreglufélags Reykjavíkur og dómsmálaráðuneytisins varðandi kaup og kjör lögreglumanna í Reykjavík síðastliðnar vikur. Lögreglan í Keflavík auglýsir í VF í þessari viku eftir 7 almennum lögregluþjónum og einum rannsóknarlögregluþjóni og lögreglan á Keflavíkurflugvelli eftir aðalvarðstjóra. Samtals eru þetta 9 stöður. VF spurði Karl Hermannsson, yfirlögregluþjón um ástand mála. „Gert ráð fyrir að 24 lögreglumenn starfi á vöktum hér í Keflavík og í dag eru 17 lögregluskólagengnir lögreglumenn við störf. Í dag eru þessar stöður mannaðar af óskólagengnum mönnum og mun hluti þeirra hætta um mánaðarmót. Þessar stöður þurfum við nauðsynlega að manna.“Áttu von á að hingað sæki óánægðir reykvískir lögregluþjónar?„Ég á ekki von á því. Launin hér eru þau sömu og í Reykjavík. Hér er þó kannski von á meiri aukavinnu, nokkuð sem hefði mögulega áhrif á þá Reykvíkinga sem vilja breyta til. Sæki hingað reyndir lögregluþjónar úr Reykjavík er það besta mál.“Hvað veldur brottfallinu úr lögreglunni í Keflavík á þessu ári?„Við höfum á síðasta áratug eða svo haft hérna sterkan kjarna ungra lögreglumanna með talsverða starfsreynslu. Þegar lögreglumenn hafa verið lengi undir aukavaktarálagi á helgarnæturvöktum og því rugli sem þeim tengist án þess að laun hækki eða stöðuveitingar fylgi er óumflýjanlegt að þeir leiti annað eða breyti til innan lögreglunnar. Þetta ferli erum við að ganga í gegnum núna og hafa margir lögreglumenn fært sig á milli embætta eða horfið til annarra starfa að undanförnu.“