HSS
HSS

Fréttir

Brotist inn og verkfærum stolið
Mánudagur 14. maí 2012 kl. 10:57

Brotist inn og verkfærum stolið



Tilkynnt var nýverið, til lögreglunnar á Suðurnesjum, um innbrot í verkstæðisbyggingu við Freyjutröð í Reykjanesbæ. Þar hafði útidyrahurð verið spennt upp og hinn óboðni gestur, eða gestir, komist inn með þeim hætti. Stolið hafði verið handverkfærum af verkstæðinu og er verðmæti þeirra um þrjátíu þúsund krónur. Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um málið eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 420-1800.

Bílakjarninn
Bílakjarninn