Mánudagur 8. apríl 2002 kl. 15:00
Brotist inn í tvo sumarbústaði
Brotist var inn í tvo sumarbústaði á Vatnsleysuströnd um helgina. Myndbandstæki og sjónvarpi var stolið úr öðrum þeirra en gasofni og gaskúti úr hinum.Hurðir á sumarhúsunum voru sparkaðar upp. Lögregla fer með rannsókn innbrotana en ennþá hefur enginn verið handtekinn vegna málanna.