Brotist inn í geymslur á Suðurnesjum
Brotist var inn í nokkrar geymslur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Geymslurnar tilheyra fjölbýli á Ásbrú og hafði læsing á hurð sem gengur að þeim verið brotin upp. Járngrindur sem aðskilja geymslurnar höfðu verið spenntar upp og komist með þeim hætti inn í þær.
Ekki liggur fyrir hvort einhverju hafi verið stolið úr geymslunum en rótað hafði verið til í þeim. Þá var brotist inn í geymslu í Keflavík og þaðan voru verkfæri tekin ásamt tveimur ferðatöskum, lögreglan rannsakar málin.