Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Brosbræður hlutu styrk frá Landsbankanum
Magnús Jóhannesson tekur við umhverfisstyrk frá Samfélagssjóði Landsbankans. Með honum á myndinni eru dr. Guðrún Pétursdóttir, formaður dómnefndar og Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans.
Fimmtudagur 23. júní 2016 kl. 11:20

Brosbræður hlutu styrk frá Landsbankanum

Brosbræður hlutu í vikunni 250.000 króna styrk frá Samfélagssjóði Landsbankans til að sýna heimildarmynd sína, Maðurinn sem minnkaði vistsporið sitt, í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu. Myndin fjallar um það hvernig Vesturlandabúar geta minnað vistspor sitt og jafnvel lifað innan sjálfbærnimarka.

Bræðurnir á bak við myndina eru þeir Sigurður Eyberg og Magnús Jóhannessynir úr Keflavík. Heimildarmyndin um manninn sem minnkaði vistsporið sitt var frumsýnd í vor og var á dögunum sýnd í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Sautján verkefni hlutu umhverfisstyrki frá Samfélagssjóði Landsbankans að þessu sinni. Styrkjunum er ætlað að styðja við verkefni á sviði umhverfismála og náttúruverndar.

Public deli
Public deli