Brjóstaskimun á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í nóvember
Í tengslum við afmælisviku Heilbrigðisstofnunar Suðurnsja, HSS, mun Brjóstamiðstöð Landspítala í samvinnu við HSS vera með brjóstaskimun í húsnæði heilsugæslunnar 20.-27. nóvember 2024.
Í framhaldinu er stefnt er að því að bjóða árlega upp á skimun á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þetta er gert í ljósi þess að samkvæmt lýðheilsuvísum Embættis landlæknis sést að skimun fyrir brjóstakrabbameini hjá konum er marktækt lægri á Suðurnesjum en annars staðar á landinu.
Gerðar verða auglýsingar til að hvetja konur til skráningar og munu þær verða birtar nú í september, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, í pistli sem hún skrifar.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fór í stefnumótunarvinnu fyrr á árinu og í tengslum við þá vinnu bárust ábendingar sem unndið var með. Niðurstaða stefnumótunarinnar verður kynnt á afmæli stofnunarinnar í nóvember næstkomandi.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				