Breyttur útivistartími tekur gildi
Þann 1. september nk. breytist útivistatíminn en þá mega börn 12 ára og yngri ekki vera á almannafæri eftir kl 20.00 nema í fylgd með fullorðnum.
Börn á aldrinum 13-16 ára skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.