Breyttur útivistartími
Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar minnir á að útivistartími barna og unglinga tók breytingum í gær 1. maí. Nú mega 12 ára börn og yngri vera úti til kl. 22:00 en 13-16 ára unglingar mega vera úti til kl. 24:00. ??Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum.
Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum og er þeim m.a. ætlað að tryggja öryggi barna auk þess sem mikilvægt er börnum og unglingum að fá nægan svefn, segir í tilkynningu.
Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum og er þeim m.a. ætlað að tryggja öryggi barna auk þess sem mikilvægt er börnum og unglingum að fá nægan svefn, segir í tilkynningu.