Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Breytt umferðarskipulag við Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Talsverðar breytingar eru á umferðarskipulagi við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Mánudagur 23. júlí 2012 kl. 13:16

Breytt umferðarskipulag við Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Til að auka öryggi þeirra sem fara um lóð Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, hefur verið ákveðið að gera  breytingar á umferðarskipulagi við flugstöðina. Ástæðan er að á álagstímum hefur myndast öngþveiti og hætta fyrir vegfarendur.


Fyrsta skrefið er breytt umferðarskipulag komumegin, að austanverðu við flugstöðina, þar sem svæði fyrir hópferðabifreiðar, leigubifreiðar og einkabíla er orðið of lítið og mikil hætta skapast.  

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar:
Lokað er fyrir allri umferð við forgarð austanmegin fyrir framan flugstöðvarbygginguna.
Nýtt svæði fyrir hópferðabifreiðar austan við FLE tekur um 20-30 hópferðabifreiðar.
Svæði fyrir leigubifreiðar er við norðaustur horn Flugstöðvar.
Svæði fyrir bílaleigubíla færist austar.
Á skammtímastæði komumegin verða fyrstu 7 mínúturnar gjaldfrjálsar.


Svæði fyrir bílaleigur, hópferðabifreiðar og leigubifreiðar var tekið í notkun föstudaginn 20. júlí sl.
Nýja umferðarskipulagið hefur verið kynnt helstu hagsmunaaðilum s.s. forsvarsmönnum hjá bílaleigum, hópferðabifreiðum og leigubifreiðum. Margar góðar ábendingar bárust og tekið var tillit til þeirra, segir á vef Isavia.

Lögreglustjóri Suðurnesja hefur samþykkt breytingarnar á nýju umferðarskipulaginu og mun hafa náið eftirlit með framfylgd þess.

Umferðarskipulag má sjá á heimasíðu Keflavíkurflugvallar á neðangreindri slóð:

http://www.kefairport.is/samgongur
 

Hér eru ný stæði fyrir rútur.

Hér eru fyrstu 7 mínúturnar gjaldfrjálsar.