Breytt leiðakerfi almenningsvagna í Reykjanesbæ
Núna um áramótin, eða mánudaginn 6. janúar, tekur gildi breytt leiðakerfi almenningsvagna í Reykjanesbæ (Strætó). Meginbreytingin er sú að leið nr. 1 (Keflavíkurleið) og leið nr. 2 (Njarðvíkurleið) verða sameinaðar og mun sú leið kallast R1. Leið nr. 3 (R3-Ásbrú) verður áfram sér leið sem og leið nr. 4 (R4-Hafnir). Áfram verður skiptistöð við Krossmóa.
Í samtali við Sigurð Inga Kristófersson, deildarstjóra umhverfismála hjá Reykjanesbæ, kom fram að þessi breyting er fyrst og fremst gerð til að bæta leiðarkerfið fyrir íbúa bæjarins. Það er ekki einungis leiðarkerfið sem breytist heldur verður þjónustan stórbætt með auknum helgar- og kvöldferðum en óskir um slíkt hafa borist frá notendum kerfisins. Akstur hefst kl. 7:00 á virkum dögum þannig að þeir sem þurfa að komast á milli hverfa geta nýtt sér almenningsvagna til að koma sér til vinnu eða í skóla fyrir kl. 8:00, þrátt fyrir að þurfa skipta um vagn. Þá verður ekið virka daga til kl. 23:00 á kvöldin en þar er hugsunin helst sú að ungmenni sem stunda íþrótta- og tómstundastarf geti nýtt sér kerfið betur.
Á virkum dögum verður ekið með 30 mínútna tíðni til kl. 19:00 en eftir það á 60 mínútna fresti. Um helgar er ekið frá kl. 10:00 til kl. 20:00 með 60 mínútna tíðni á laugardögum. Hingað til hefur akstur á sunnudögum ekki verið í boði en hann bætist nú við og verður keyrt frá kl. 10:00 til kl. 17:00 með 90 mínútna tíðni. Þetta er gert í tilraunarskyni og gaman verður að sjá hvort bæjarbúar muni nýta sér þessa þjónustu. Áfram verður pöntunarþjónusta fyrir íbúa í Höfnum samkvæmt tímatöflu leiðar R4-Hafnir. Meginstoppistöðvarnar verða gerðar betri hvað varðar aðgengi og lýsingu að sögn Sigurðar.
Árskortin fyrir árið 2020 eru komin í sölu og er árgjaldið það sama og á síðasta ári eða kr. 5.000 fyrir almenn kort og kr. 2.000 fyrir börn, aldraða og öryrkja. Sölustaðir árskorta eru Bókasafn Reykjanesbæjar, Sundmiðstöð Sunnubraut, Íþróttamiðstöð Njarðvíkur og Hljómahöll „Það er von okkar að þessar breytingar verði til þess að fleiri íbúar muni nýta sér almenningssamgöngur á nýju ári en samkvæmt talningum farþega voru almenningsvagnar nýttir 130.000 sinnum á árinu 2019,“ segir Sigurður Ingi. Talningar á stoppistöðvum verða gerðar á árinu og kerfið endurskoðað í lok árs. Þá verða breytingar gerðar ef þurfa þykir. Við viljum mjög gjarnan fá ábendingar um það sem betur má fara, og auðvitað hvað vel er gert, á netfangið [email protected] „Það er mjög mikilvægt að heyra frá notendum kerfisins til að geta gert það sem skilvirkast,“ segir Sigurður Ingi að lokum.
Sigurður Ingi Kristófersson, deildarstjóri umhverfismála hjá Reykjanesbæ.