Miðvikudagur 17. nóvember 1999 kl. 23:12
BREYTINGAR HJÁ VÍKURFRÉTTUM

Tilraunaútgáfu okkar á helgarblaði er nú lokið og munum við nú einbeita okkur að útgáfu hefðbundinna Víkurfrétta en rétt er að greina örlítið frá nokkrum breytingum á ýmsu sem snúa að útgáfu blaðsins, nýjungum sem bæta blaðið.Fyrir það fyrsta má nefna að Víkurfréttir eru nú prentaðar í fullkomnustu prentvél landsins hjá Prentsmiðjunni Odda hf. sem gefur okkur aukna möguleika í litprentun. Gæði prentunarinnar eru einnig aukin, auk þess sem blaðið er nú vírbundið. Blaðið mun framvegis koma út fyrir hádegi á fimmtudögum en Íslandspóstur hefur tekið að sér dreifingu Víkurfrétta. Sem fyrr er blaðinu dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum án endurgjalds. Tímaritið og HelgarblaðiðÁ næsta ári verða Víkurfréttir 20 ára. Fyrr á þessu ári hófum við af því tilefni tilraun með útgáfu á tímariti Víkurfrétta sem fékk nafnið TVF. Þrjú blöð hafa komið út af TVF og nú í lok október og nóvember gáfum við út Helgarblað Víkurfrétta. Reynsluna af þessum tveimur útgáfum munum við nú skoða gaumgæfilega. Við getum strax upplýst að tímaritsins er aftur að vænta fljótlega á árinu 2000. Hversu regluleg sú útgáfa verður mun koma í ljós. Tilraunaútgáfa okkar á Helgarblaði Víkurfrétta og útgáfa TVF á árinu var fyrir okkur sem ítarleg skoðanakönnun á því hvað fólk vill fá. Undirtektirnar hafa verið mjög góðar við þessum blöðum og erum þakklát fyrir það. Jólavertíðin gengur í garðNú styttist óðum til jóla og starfsfólk Víkurfrétta er komið í „jólagírinn“. Eins og undanfarin ár verður blaðið veglegt næstu vikurnar og andi jólanna færist yfir útgáfuna. Nú er vinnsla Jólahandbókar Víkurfrétta hafin og verslanir þegar farnar að taka frá auglýsingapláss. Handbókin kemur út 2. desember og verður öll litprentuð. Jólahandbók Víkurfrétta markar upphaf jólavertíðarinnar á Suðurnesjum en handbókinni verður fylgt eftir með skemmtilegum lesendaleik í desember þar sem spurt verður spurninga er tengjast handbókinni.Í desember verður útgáfan hjá okkur myndarleg. Starfsfólki Víkurfrétta hefur fjölgað og höfum við m.a. fengið til liðs við okkur grafískan hönnuð en mikið verður lagt upp úr auglýsingagerðinni í jólamánuðinum eins og alltaf.Verið í góðu sambandiAð lokum hvetjum við lesendur blaðsins til að vera í góðu sambandi við okkur nú sem áður. Gott blað byggist á góðu sambandi við lesendur. Látið okkur vita af skemmtilegum uppákomum. Við erum við símann allan sólarhringinn í númerinu 898 2222.