Breytingar hjá Saltfisksetri Íslands
Stjórn Saltfiskseturs Íslands hefur ákveðið að hefja nú þegar vinnu við endurskipulagningu og hagræðingu í rekstri setursins í ljósi þess að tekjur þess hafa dregist verulega saman undanfarin ár. Jafnframt hefur Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar falið stjórn setursins að fylgja eftir og útfæra nánar hugmyndir um Eldfjallagarð og Auðlindahús í Grindavík.
Stjórnin hefur því samþykkt að Saltfisksetrinu verði lokað í núverandi mynd frá og með 1. janúar 2011, en starfsemi hefjist aftur í húsinu í maí á grunni nýrrar stefnumótunar.
Hópar sem hafa ákveðið að sækja safnið heim næstu vikur og mánuði geta haft samband við bæjarskrifstofu og verður komið til móts við þeirra óskir eftir fremsta megni.
Stjórn Saltfiskseturins biðst afsökunar á þeim óþægindum sem þessi breyting kann að valda viðskiptavinum setursins tímabundið.