Breytingar á Tækniþróunarsjóði kynntar í Eldey
Rannís mun kynna þær breytingar sem gerðar hafa verið á Tækniþróunarsjóði á hádegiserindi í Eldey frumkvöðlasetri á morgun, fimmtudaginn 11. febrúar, en frestur til að skila inn umsóknum rennur út 15. febrúar n.k.
Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra og starfar samkvæmt lögum um opinberan stuðning við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins. Hlutverk sjóðsins er að styðja rannsóknir og tækniþróun sem stuðlar að aukinni samkeppnishæfni atvinnulífsins.
Lýður S. Einarsson kynnir nýja stefnumótun sjóðsins með áherslu á frumkvöðla- og nýsköpunarstyrki.